Dóra Júlía

Dóra Júlía

Vissir þú að Dóra Júlía er forfallinn hlaupfíkill?

Viðmælandi mánaðarins er plötusnúðurinn og fjölmiðlakonan Dóra Júlía. Ásamt því að þeyta skífum og skrifa pistla kennir hún einnig Barre Fit tíma hjá World Class.

Dóra Júlía elskar góð kósýkvöld, rólega göngutúra og er mikil páskaeggjakona.

Noisirius2974

Viðmælandi mánaðarins

Dóra Júlía

Hver er þín uppskrift af kósýkvöldi?

Ég elska kósýkvöld og finnst æðislega gaman á sunnudagskvöldum að leyfa mér að liggja uppi í sófa með kærustunni minni, detta inn í spennandi Netflix seríu með góðan rakamaska á mér og borða eitthvað gott. Fara svo í rólegan kvöld göngutúr og heitt bað fyrir svefninn! 

 

Hvað ertu að horfa á þessa dagana?

Ég er nýbúin með nýjustu Monsters seríuna um Menedez bræðurna og svo horfði ég líka á nýjustu seríu Emily in Paris í einum rykk. Ég byrjaði líka í fyrsta sinn að horfa á Grey’s Anatomy í vor og horfi við og við á einn og einn þátt af því en er spennt fyrir nýjum spennuseríum í vetur. Svo finnst mér líka ótrúlega gaman að detta inn á góða vefþætti inni á Vísi. 

 

Súkkulaði eða hlaup?

Ég er forfallinn hlaupfíkill en finn að með árunum sækist ég meira í súkkulaði! 

 

Hvað er það fyrsta sem kemur upp í hugann þinn þegar þú heyrir orðin “ljúfa líf”

Sól og sumar, bátsferð í bongó blíðu á suðrænum slóðum og rólegur hjartsláttur. 

 

Ef þú værir ofurhetja, hvert væri þema lagið þitt?

Vá, frábær spurning. Það yrði að vera góður og ágætlega hraður taktur, mjög fyndið að það fyrsta sem kemur upp í hugann er lagið T.H.E (The Hardest Ever) með Jennifer Lopez, Mick Jagger og Will.i.am Það er pepp í því!

 

1194515

Hvert er uppáhaldsnammið?

Hvað var uppáhalds nammið þið í æsku, en í dag?

Í æsku var það sykrað hlaup, ég og mamma mín deilum þessari brjáluðu ást á hlaupi. Í gegnum tíðina og í dag hefur karamellu súkkulaði verið í miklu uppáhaldi. Um leið og ég skrifa þetta langar mig brjálæðislega mikið í karamellu súkkulaði! 

 

Ef þú gætir farið út að borða með hverjum sem er, hverjir væru það?

Persónulega finnst mér bara svo ótrúlega æðislegt að fara út að borða með kærustunni minni og vinum eða fjölskyldu, það er besti félagsskapur í heimi! En svo eru ótrúlega margar skvísur sem ég lít upp til eða sæki innblástur til í tísku og starfi. Peggy Gou, Kate Moss, Chloë Sevigny og Miley Cyrus, það væri alveg alvöru skvísu dinner.

 

Hver er þín fyrsta minning með Nóa Siríus?

Þegar ég var bara um fimm ára var ég að æfa ballett með stelpu og ég man að pabbi hennar var að vinna hjá Nóa Siríus og við öfunduðum hana alveg sjúklega og hugsuðum vá hvað hún er heppin að geta alltaf fengið súkkulaði! Og auðvitað bara fyrstu páskaeggin sem maður man eftir. Ég er mikil páskaeggjakona. 

 

 

Áttu þér eitthvað óvenjulegt nammi “combó”?

Nei ég er held ég frekar hefðbundin og jafnvel smá picky þegar það kemur að nammi, margar blöndur sem ég get ekki skilið. Er auðvitað á súra og sterka combó vagninum! 

 

 

Ef þú getur búið til eina bragðtegund af Nóa Kroppi, hvað væri það?

Hvítt súkkulaði með karmellu inni í, eða pipar að utan og einhver hnetufylling!