Brownie smákökukarlar
Brownie smákökukarlar úr blautri klesstri brownie með Rice Krispies
Uppskrift
Leiðbeiningar
Kveikið á ofninum og stillið á 200°C.
Bræðið smjörið og leyfið því að kólna örlítið.
Þeytið saman egg og sykur í nokkrar mín eða þar til blandan er orðin létt og ljós og myndar borða. Hellið smjörinu út í ásamt vanilludropum og hrærið á meðan.
Setjið hveiti og kakó út í og blandið öllu vel saman með sleikju. Bætið því næst Rice Krispies út í og veltið því varlega saman við.
Hellið deiginu ofan í 20×30 cm form sem hefur verið klætt með smjörpappír og bakið í u.þ.b. 20 mín.
Takið smákökukarla form og skerið út smákökukarla.
Bræðið suðusúkkulaðið og hjúpið smákökukarlana, leyfið súkkulaðinu að harðna.
Bræðið hvíta súkkulaðið og setjið í sprautupoka með litlum hringlaga stút, sprautið andlit, hneppur og ermar á smákökukarlinn.
Innihaldsefni
125 g smjör
300 g sykur
2 egg
1 tsk vanilludropar
110 g hveiti
40 g kakó
40 g Rice Krispies
200 g Nóa Síríus suðusúkkulaði
50 g Síríus hvítir dropar