Hollustu nammibitar

Linda Ben X Noi Sirius Mars 2023 9 Scaled

Uppskrift

Leiðbeiningar

Fylgdu skrefunum og þá gengur allt eins og í sögu

Setjið döðlur, kasjúhnetur, tahini og kakó í matvinnsluvél, maukið.

 

Pressið deigið í smjörpappírsklætt eldfastmót sem er 20×15 cm eða álíka stórt. Setjið í frysti í 1-2 klst.

 

Bræðið helminginn af dökka súkkulaðinu yfir vatnsbaði, þegar það er bráðnað alveg takið þá það upp úr vatnsbaðinu, brjótið restina af súkkulaðinu ofan í brædda súkkulaðið og hrærið þar til allt hefur bráðnað saman.

 

Hellið brædda súkkulaðinu yfir eldfastamótið og látið súkkulaðið stirðna. Skerið í bita.

Innihaldsefni

Allt sem þú þarft fyrir þessa uppskrift

250 g döðlur

150 g kasjúhnetur

150 g tahini

20 g síríus sælkerabaksturs kakóduft

U.þ.b 1 msk vatn (ef þarf)

200 g 70% síríus suðusúkkulaði