Krönsí hafrakúlur
Orkuríkar og góðar hafrakúlur!
Uppskrift
Leiðbeiningar
Fylgdu skrefunum og þá gengur allt eins og í sögu
Setjið All Bran í blandarann í um 15 sekúndur og hellið duftinu síðan í skál.
Bætið öllum öðrum hráefnum nema 70% súkkulaði saman við og blandið vel saman.
Kælið í hálfa til eina klukkustund og mótið/þjappið síðan saman í kúlur sem eru um ein matskeið á stærð.
Bræðið 70% súkkulaðið og setjið það óreglulega yfir kúlurnar og kælið þar til súkkulaðið storknar.
Geymið í kæli í vel lokuðu íláti eða setjið í frysti.
Innihaldsefni
Allt sem þú þarft fyrir þessa uppskrift
100 g Kellogg‘s All Bran
80 g grófir hafrar
40 g kókosmjöl
1 msk. Síríus kakóduft
1 msk. chiafræ
140 g hnetusmjör
50 g kókosolía (brædd)
1 tsk. vanilludropar
40 g Síríus 70% súkkulaði