Bollakökujólatré

K8A1894 Bollakokujolatre
Bökunartími
25 mín
Undirbúningstími
10 mín

Uppskrift

Leiðbeiningar

Fylgdu skrefunum og þá gengur allt eins og í sögu

SÚKKULAÐIBOLLAKÖKUR

Hitið ofninn í 175°C.

Bræðið súkkulaði og setjið í hrærivélarskál ásamt kakó og kaffi og blandið vel.

Þeytið eggin, bætið vanilludropum og matarolíu saman við og setjið út í súkkulaðiblönduna. Hrærið saman.

Setjið hveiti, sykur, salt og matarsóda í skál og blandið saman við súkkulaðiblönduna í nokkrum skömmtum, skafið niður á milli.

Skiptið niður í 12 bollakökuform og bakið í um 20 mínútur.

 

SMJÖRKREM OG SKREYTING

Þeytið smjörið eitt og sér þar til það verður létt í sér.

Bætið flórsykri og rjóma saman við í nokkrum skömmtum á víxl og hrærið vel á milli.

Bætið vanilludropum og salti saman við og hrærið áfram vel.

Setjið matarlit saman við, hrærið og skafið niður nokkrum sinnum þar til þið náið þeim litatón sem óskað er eftir.

Setjið kremið í sprautupoka og sprautið jólatré. Gott er að hafa neðstu stjörnuna breiðasta og síðan hinar alltaf aðeins minni og minni til að mynda jólatré.

Skreytið með súkkulaðiperlum hér og þar og sigtið flórsykur yfir hvert tré sem snjó.

Innihaldsefni

Allt sem þú þarft fyrir þessa uppskrift

SÚKKULAÐIBOLLAKÖKUR

160 g Síríus suðusúkkulaði

40 g Síríus kakóduft

110 ml uppáhellt kaffi (við stofuhita)

2 egg

2 tsk. vanilludropar

70 ml matarolía

120 g hveiti

½ tsk. salt

1 tsk. matarsódi

 

SMJÖRKREM OG SKREYTING

280 g smjör (við stofuhita)

500 g flórsykur

100 ml rjómi

3 tsk. vanilludropar

¼ tsk. salt

Grænn matarlitur

Síríus súkkulaðiperlur

Flórsykur (til að sigta yfir)