Karamellubolla

Karamellubolla

Uppskrift

Leiðbeiningar

Fylgdu skrefunum og þá gengur allt eins og í sögu

Vatnsdeigsbollur

Hitið ofninn í 180°C.

Blandið hveiti, lyftidufti og salti saman í skál og leggið til hliðar.

Pískið eggin í skál, vigtið og geymið. Ef eggin eru lítil gæti þurft aðeins meira en 3 egg.

Hitið vatn og smjör saman í potti þar til smjörið bráðnar og leyfið aðeins að sjóða, slökkvið þá á hellunni.

Setjið þurrefnin saman við og hrærið vel þar til „smjörbolla“ myndast.

Færið þá deigið yfir í hrærivélarskálina og hrærið rólega með K-inu þar til mesti hitinn er farinn út því.

Bætið þá eggjunum saman við í nokkrum skömmtum og hrærið áfram saman.

Setjið þá kúfaða matskeið á bökunarpappír fyrir hverja bollu (ég notaði litla ísskeið) og bakið í 30-35 mínútur eða þar til bollurnar verða vel gylltar.

Alls ekki opna ofninn til að kíkja á þær/botninn fyrr en í fyrsta lagi eftir 25 mínútur því þá eru meiri líkur á því að þær falli.

Leyfið bollunum að kólna, skerið þær í sundur og hefjist handa við fyllingarnar.

 

Karamellu ganache

Saxið niður rjómasúkkulaði með karamellukurli og íslensku sjávarsalti og hitið rjómann upp að suðu.

Hellið síðan heita rjómanum yfir súkkulaðið og blandið vel saman.

 

Jarðarberjarjómi

Þeytið rjóma og blandið jarðarberjabúðingnum saman við.

Skerið bollurnar í tvennt, setjið karamellu ganache á botninn og raðið jarðarberjasneiðum á bolluna, setjið jarðarberjarjómann ofaná og stráið karamellukurli yfir.

 

Súkkulaðikaramella

Setjið Nóa Rjómakúlur í lítinn pott ásamt rjómanum og bræðið saman.

Dýfið lokunum af bollunum ofan í karamelluna þegar hún er tilbúin eða setjið á lokin með skeið.

Stráið karamellukurli og súkkulaðiperlum yfir.

Innihaldsefni

Allt sem þú þarft fyrir þessa uppskrift

Vatnsdeigsbollur

360 ml vatn

180 g smjör

200 g hveiti

1 tsk. lyftiduft

¼ tsk. salt

3 egg (160 g)

 

Karamellu ganache

100 g Nóa rjómasúkkulaði með karamellukurli og íslensku sjávarsalti

50ml rjómi

 

Jarðarberjarjómi

500 ml rjómi (þeyttur)

4-5 msk Royal jarðarberjabúðingur

Jarðarber (fersk), skorin í sneiðar

Síríus Karamellukurl

 

Súkkulaðikaramella

1 poki Nóa Rjómakúlur

4 msk rjómi

 

Skraut

Síríus Karamellukurl

Síríus Súkkulaðiperlur