Nóa Kropp bomba með hindberjablæ

Noa Kropp Bomba

Uppskrift

Leiðbeiningar

Fylgdu skrefunum og þá gengur allt eins og í sögu

Vatnsdeigsbollur

Hitið ofninn í 180°C.

Blandið hveiti, lyftidufti og salti saman í skál og leggið til hliðar.

Pískið eggin í skál, vigtið og geymið. Ef eggin eru lítil gæti þurft aðeins meira en 3 egg.

Hitið vatn og smjör saman í potti þar til smjörið bráðnar og leyfið aðeins að sjóða, slökkvið þá á hellunni.

Setjið þurrefnin saman við og hrærið vel þar til „smjörbolla“ myndast.

Færið þá deigið yfir í hrærivélarskálina og hrærið rólega með K-inu þar til mesti hitinn er farinn út því.

Bætið þá eggjunum saman við í nokkrum skömmtum og hrærið áfram saman.

Setjið þá kúfaða matskeið á bökunarpappír fyrir hverja bollu (ég notaði litla ísskeið) og bakið í 30-35 mínútur eða þar til bollurnar verða vel gylltar.

Alls ekki opna ofninn til að kíkja á þær/botninn fyrr en í fyrsta lagi eftir 25 mínútur því þá eru meiri líkur á því að þær falli.

Leyfið bollunum að kólna, skerið þær í sundur og hefjist handa við fyllingarnar.


Fylling 

Stífþeytið rjómann, bætið hindberjunum saman við.

Skerið bollurnar í tvennt og sprautið hindberjarjómanum ofan á botninn.

Raðið Nóa Kroppi þar á.

Setjið suðusúkkulaði og olíu í skál og bræðið í vatnsbaði.

Dýfið lokinu af bollunni í súkkulaðið og setjið ofan á. Stráið Nóa Kroppi yfir

Innihaldsefni

Allt sem þú þarft fyrir þessa uppskrift

Vatnsdeigsbollur

360 ml vatn

180 g smjör

200 g hveiti

1 tsk. lyftiduft

¼ tsk. salt

3 egg (160 g)

Fylling

½ l rjómi

2 ½ dl fersk hindber

50 g Síríus suðusúkkulaði

1 msk matarolía

150 g Nóa Kropp