Saltkaramellusæla með sítrónutvisti

Uppskrift
Leiðbeiningar
Vatnsdeigsbollur
Kveiktu á ofninum og stilltu á 180°C og blástur.
Smjör, sykur og vatn er sett í pott og soðið saman í 2-3 mín.
Slökktu svo undir pottinum.
Hveiti, lyftiduft og salt er sett í skál, bættu því út í smjör-vatnið og hrærðu vel saman með sleif.
Deigið á að vera þétt og lyftast upp frá brúnum pottsins.
Láttu standa í 5 mín.
Færðu deigið í hrærivél.
Settu þrjú egg út í deigið, eitt og eitt í einu og hrærðu þau vel saman við deigið.
Vegna þess að egg eru misttór eru mismunandi hversu mikið þú þarft af seinasta egginu.
Áferðin á deiginu á að vera þannig að deigið lekur hægt og svolítið erfiðlega af sleifinni á nokkrum sekúndum.
Deigið á að halda nokkurveginn sömu lögun eftir að þú setur það á plötuna en ekki leka út og verða flatt.
Settu seinasta eggið í litla skál og hrærðu það saman.
Settu 1 msk af egginu í einu út í og hrærið vel á milli þangað til þú ert komin með rétta áferð á deigið.
Settu smjörpappír á ofnplötu og settu deigið í sprautupoka eða matskeiðar til að útbúa bollurnar (2 msk ein bolla).
Hafðu gott pláss á milli bollanna því þær stækka mikið í ofninum, gott að miða við um það bil 12 bollur á hverja plötu.
Bollurnar eru bakaðar í 20-25 mín en ekki opna ofninn fyrr en allavega 20 mín eru liðnar.
Þá er hægt að taka eina út og meta hversu margar mínútur bollurnar eiga eftir, en þú sérð það þegar þú opnar bolluna og sérð hversu blaut hún er inní.
Fylling
Stífþeytið rjómann.
Saxið Síríus rjómasúkkulaði með karamellu og salti frekar smátt.
Skerið bollurnar í tvennt.
Setjið sítrónusmjör innan á hliðarnar á rjómasprautupokanum með skeið og setjið svo þeytta rjómann í miðjuna.
Sprautið á bollurnar.
Stráið um það bil einni teskeið af saxaða Síríus rjómasúkkulaðinu með karamellukurli og sjávarsalti ofan á rjómann.
Setjið lokið á.
Saxið helminginn af Nóa Rjómakúlunum og geymið til skrauts.
Bræðið hinn helminginn af kúlunum og Síríus suðusúkkulaðinu í vatnsbaði ásamt olíunni.
Setjið yfir bollurnar og skreytið með saxaða rjómasúkkulaðinu og söxuðu rjómakúlunum.
Innihaldsefni
Vatnsdeigsbollur
125 g smjör
1 msk sykur
275 ml vatn
170 g hveiti
1 tsk lyftiduft
½ tsk salt
3-4 egg
Fylling
½ l rjómi
150 g Síríus rjómasúkkulaði með karamellukurli og sjávarsalti
Sítrónusmjör (Lemon Curd)
150 g Nóa rjómakúlur
50 g Síríus suðusúkkulaði
1 msk olía