Súkkulaði Baileys bollur

Baileys Bollur Döðlur Og Smjör

Uppskrift

Leiðbeiningar

Fylgdu skrefunum og þá gengur allt eins og í sögu

Vatnsdeigsbollur

Stillið ofn á 180°c.

Setjið vatn og smjör í pott og leyfið smjörinu að bráðna.

Takið pottinn af hitanum og hrærið hveitinu saman við þar til deigið er orðið einn massi, kælið deigið örlítið.

Setjið deigið í hrærivélarskál og bætið eggjunum út í einu í einu og hrærið vel á milli.

Setjið deigið þá í sprautupoka og sprautið bollur á smjörpappírsklædda plötu, eða notið tvær teskeiðar til setja deigið á plötuna.

Bakið í 18-20 mínútur.

 Ef þið viljið hafa bollurnar stærri þá er tíminn aukinn í samræmi við það.

 

Súkkulaði fylling

Brjótið súkkulaðið í bita og setjið í skál ásamt Baileys og 100 ml af rjóma.

Bræðið í örbylgju eða yfir vatnsbaði.

Takið u.þ.b 100 ml frá og setjið i aðra skál.

Þeytið þá rjóma og blandið varlega saman við súkkulaðiblönduna, setjið inn í ísskáp og kælið í 5-10 mín.

Skerið bollurnar í tvennt og dýfið efri partinum ofan í súkkulaðið sem þið settuð í skál til hliðar.

Sykurristið möndlur, setjið möndlurnar á pönnu á miðlungshita og leyfið sykrinum að bráðna og hjúpa sig utan um þær, tekur u.þ.b 10 mín.

Saxið þær og dreifið yfir súkkulaðið.

Takið súkkulaðifyllinguna úr kæli og setjið í sprautupoka eða notið tvær skeiðar.

Skerið bananann í sneiðar og dreifið yfir bollu botnana og sprautið síðan súkkulaðifyllingu yfir banana.

Lokið bollunum og berið fram.

Innihaldsefni

Allt sem þú þarft fyrir þessa uppskrift

Vatnsdeigsbollur
250 ml vatn
125 g smjör
125 g hveiti
4 egg

Sykurristaðar möndlur
50 g möndlur
2 msk sykur
1 msk vatn

Súkkulaði fylling
200 g Síríus Barón súkkulaði 56% 
100 ml Baileys líkjör
100 ml rjómi
200 ml rjómi, þeyttur