Trítlabollur með rjómakúlukremi

Trítla Bollur Grgs

Uppskrift

Leiðbeiningar

Fylgdu skrefunum og þá gengur allt eins og í sögu

Vatnsdeigsbollur

Hitið vatn í potti og bætið smjöri saman við.

Látið sjóða í smá stund. Setjið hveiti og salt saman við og hrærið rösklega saman í pottinum.

Kælið deigið með því að setja það í hrærivélaskálina og dreifa því upp á skálarbrúnirnar.

Setjið egg í mælikönnu og pískið saman.

Ef eggin eru mjög stór er ekki víst að það þurfi alveg 3 egg svo það er betra að píska þau saman og skilja smá eftir.

Þegar deigið er orðið volgt má byrja að hræra það með hræraranum (káinu) og setja eggin út í í smá skömmtum.

Hitið ofninn í 175°C blástur.

Setjið deigið á plötu klædda bökunarpappír með góðu millibili.

Stærðin fer eftir smekk en best er að nota sprautupoka en einnig er fínt að nota matskeiðar.

Bakið í að minnsta kosti 30 mín.

Jafnvel má fara alveg upp í 40 mín ef þið viljið hafa bollurnar frekar þurrar en þannig eru líka minni líkur á því að þær falli.

Aldrei opna ofninn fyrr en eftir a.m.k 25 mín.

 

Rjómakúlu krem

Setjið Nóa Rjómakúlur í lítinn pott ásamt rjómanum og bræðið saman.

Skerið bollurnar í tvennt og setjið smá rjómakúlukrem í botninn og sprautið rjóma yfir.

Setjið lokið ofan á og dreifið meira af rjómakúlukremi yfir.

Skreytið með trítlum, súkkulaðiperlum og karamellukurli.

Innihaldsefni

Allt sem þú þarft fyrir þessa uppskrift

Vatnsdeigsbollur

2 dl vatn

80 g smjör

125 g hveiti

Salt á hnífsoddi

2-3 egg

¼ l rjómi

 

Rjómakúlukrem

1 poki Nóa Rjómakúlur

4 msk rjómi

 

Skraut ofan á

Nóa Trítlar

Síríus Súkkulaðiperlur

Síríus Karamellukurl