Ávaxtabomba með Síríus Pralín
Uppskrift
Leiðbeiningar
Fylgdu skrefunum og þá gengur allt eins og í sögu
Myljið kexið og setjið 1⁄2 dl af rjóma saman við svo úr verði létt deig.
Skiptið niður í 4 glös. Skerið ávextina smátt og deilið jafnt í glösin.
Setjið 1 dl af rjóma í pott ásamt Síríus Pralín og hrærið þar til það er bráðið.
Látið kólna lítillega áður en sósan er sett yfir.
Bleytið makkarónurnar með Baileys og setjið yfir allt.
Innihaldsefni
Allt sem þú þarft fyrir þessa uppskrift
8 súkkulaðikexkökur
1 1⁄2 dl rjómi
3 kíví
2 bananar
250 g jarðarber
200 g Síríus Pralín með karamellufyllingu
6 makkarónukökur, muldar
6 msk Baileys