Bailey's trufflur

Bailys Trufflur

Uppskrift

Leiðbeiningar

Fylgdu skrefunum og þá gengur allt eins og í sögu

Setjið Bailey's og rjóma í pott og hitið að suðu.

Saxið á meðan súkkulaðið smátt og setjið í skál.

Takið svo pottinn af hitanum og hellið blöndunni yfir súkkulaðið.

Látið standa í 1 mínútu.

Hrærið þar til súkkulaðið er bráðið og blandan orðin samfelld og slétt.

Geymið trufflublönduna í kæliskáp í 2 klukkustundir eða yfir nótt, eða þar til hún hefur stífnað.
Takið um það bil teskeið af massanum og mótið í kúlu.
Veltið kúlunni upp úr sigtuðu kakói og setjið hana á plötu sem hefur verið klædd með bökunarpappír.
Endurtakið þar til blandan er uppurinn. Geymið trufflunar í kæli og verið þær fram kaldar.

Innihaldsefni

Allt sem þú þarft fyrir þessa uppskrift

1/2 dl Bailey's líkjör
3/4 dl Rjómi
250 g Síríus suðusúkkulaði
Síríus kakóduft