Bananasplitt með heitri íssósu
Uppskrift
Leiðbeiningar
Bræðið allt í sósuna saman í potti þar til kekkjalaust.
Leyfið hitanum aðeins að rjúka úr og sósunni að þykkna og njótið síðan með hinum ýmsu ísréttum.
Hægt er að geyma sósuna í lokuðu íláti í ísskáp og hita upp að nýju í örbylgjuofni síðar.
Skerið bananana í tvennt eftir þeim endilöngum, komið fyrir á disk/skál og setjið ískúlurnar á milli helminganna.
Setjið vel af heitri íssósu á kúlurnar og á milli þeirra og skreytið síðan með Nóakroppi, Síríus súkkulaðiperlum, þeyttum rjóma og kirsuberjum og njótið!
Innihaldsefni
Íssósa
100 g Síríus Pralín með karamellufyllingu
100 g Síríus Pralín með bananafyllingu
70 ml rjómi
Bananasplitt
2 stórir bananar
2 kúlur vanilluís
2 kúlur jarðarberjaís
2 kúlur súkkulaðiís
Nóakropp
Síríus súkkulaðiperlur
200 ml þeyttur rjómi
6 niðursoðin kirsuber