Coco Pops bitar með lakkrís
Ca. 20 stk
Uppskrift
Leiðbeiningar
Fylgdu skrefunum og þá gengur allt eins og í sögu
Blandið saman í skál lakkrískurli, trompkurli, söxuðu rjómasúkkulaði og Coco Pops.
Bræðið saman smjör og síróp við vægan hita og blandið saman við hráefnin í skálinni.
Skiptið blöndunni á milli 20 pappírsmóta fyrir múffur. Skreytið með Tromp bitum.
Innihaldsefni
Allt sem þú þarft fyrir þessa uppskrift
150 g Síríus lakkrískurl
100 g Síríus rjómasúkkulaði, saxað í bita
200 g Kellogg ́s Coco Pops morgunkorn
100 g smjör
6 msk. síróp
2 stk. Nóa Lakkrís Tromp, skorið í litla bita