Döðlugott með lakkrískurli

Döðlugott Með Lakkrískurli

Uppskrift

Leiðbeiningar

Fylgdu skrefunum og þá gengur allt eins og í sögu

Döðlur og smjör brætt saman í potti.

Púðursykurinn er bræddur með þangað til döðlurnar eru orðnar mjúkar.

Blandið Rice Krispies og lakkrískurli saman við og setjið í form í frysti í 10 mínútur.

Bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði.

Hellið yfir Rice Krispies blönduna og frystið í um það bil 30 mínútur. Skerið í bita, berið fram og njótið.

Innihaldsefni

Allt sem þú þarft fyrir þessa uppskrift

500 g döðlur, saxaðar smátt
250 g smjör
120 g púðursykur
150 g Kellogg's Rice Krispies
400 g Síríus rjómasúkkulaði
2 pokar Síríus sælkerabakstur Eitt Sett kurl