Hátíðarkaka
Uppskrift
Leiðbeiningar
HÁTÍÐARKAKA
Hitið ofninn í 180°C og smyrjið tvö 20 sm hringlaga bökunarform að innan.
Þeytið egg og sykur saman þar til blandan verður ljós og létt.
Blandið hveiti, kakói og lyftidufti saman í skál og hrærið.
Bætið hveitiblöndunni saman við ásamt mjólkinni og smjörinu og hrærið þar til allt hefur blandast vel. Skiptið deiginu jafnt á milli formanna og dreifið úr því.
Bakið í 18-20 mínútur. Kælið kökuna alveg áður en þið setjið kremið á hana.
SÚKKULAÐIKREM
Hrærið smjörið vel þar til það verður mjúkt og slétt.
Blandið kakói og flórsykri saman í skál og setjið saman við smjörið, smávegis í einu.
Bætið rjóma saman við ásamt vanilludropum og hrærið vel þar til allt hefur náð að blandast vel saman og kremið er orðið mjúkt og slétt.
Setjið krem á milli botnanna og smyrjið síðan alla kökuna með kremi. Skreytið með Síríus súkkulaðiperlum að vild.
Innihaldsefni
HÁTÍÐARKAKA
210 g sykur
3 egg
160 g hveiti
2 msk. Síríus kakó
3 tsk. lyftiduft
1 dl mjólk
60 g smjör, bráðið
SÚKKULAÐIKREM
340 g smjör við stofuhita
500 g flórsykur
90 g Síríus kakó
3 msk. rjómi
1 tsk. vanilludropar
SKRAUT
Síríus súkkulaðiperlur