Karamellubitar

Noi Bokunarbaeklingur 2020 11178 Örkinhansnóa 1993 Copy

Uppskrift

Leiðbeiningar

Fylgdu skrefunum og þá gengur allt eins og í sögu

Bræðið smjör og rjómasúkkulaði saman.

Mýkið rjómakúlur í örbylgjuofni eða potti.

Hrærið mjólkinni saman við rjómakúlubráðina og hitið þar til blandan verður þykkfljótandi.

Bætið kókosmjölinu saman við, hrærið vel og hellið út í rjómasúkkulaði blönduna.

Látið mesta hitann rjúka úr karamellunni og hellið í form.

Geymið botninn í kæli á meðan súkkulaðið er brætt við vægan hita.

Smyrjið suðusúkkulaðinu yfir þegar blandan hefur stífnað og skreytið með Nóa Kroppi.

Skerið í ferkantaða bita og geymið í lokuðu íláti í kæli fram að framreiðslu.

Innihaldsefni

Allt sem þú þarft fyrir þessa uppskrift

BOTN
1⁄2 dl smjör 
200 g Síríus rjómasúkkulaði
200 g Nóa rjómakúlur
3 msk. mjólk 2 dl kókosmjöl 
200 g Síríus suðusúkkulaði

 

SKRAUT
1-2 dl Nóa Kropp