Kirsuberjakossar
Uppskrift
Leiðbeiningar
Setjið smjörpappír á plötu og setjið til hliðar.
Hellið vökvanum af kirsuberjunum og raðið þeim á pappír til þess að þurrka þau.
Hnoðið marsípan og flórsykur þar til það hefur blandast vel saman.
Fletjið marsípanið út þar til það er orðið u.þ.b. 0,5 cm á þykkt.
Gott er að hafa vel af flórsykri þegar þið fletjið marsípanið út svo það festist ekki við borðið.
Skerið út u.þ.b. 5 x 5 cm ferninga.
Setjið marsípanið utan um hvert kirsuber fyrir sig og myndið fallega kúlu.
Bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði þar til það hefur bráðnað alveg.
Dýfið kirsuberjunum ofan í súkkulaðið og leggið á smjörpappírinn.
Gott er að setja kirsuberin í kæli þar til súkkulaðið hefur náð að storkna.
Geymist í kæli þar til kossarnir eru bornir fram.
Innihaldsefni
1 krukka af kirsuberjum með stilkum
200 g marsípan
80 g flórsykur
250 g Síríus suðusúkkulaði