Pandagott

Pandagott 18 1024X683

Uppskrift

Leiðbeiningar

Fylgdu skrefunum og þá gengur allt eins og í sögu

Setjið bökunarpappír í kökumót/fat sem er um 20 x 30 cm að stærð.

Bræðið smjörið í stórum potti við meðalháan hita.

Þegar það er bráðið má bæta döðlum og púðursykri saman við og leyfa að malla við meðalhita í um 15 mínútur eða þar til döðlurnar hafa bráðnað og blandan minnir á þykka karamellu. Hrærið mjög reglulega í allan tímann.

Saxið á meðan Pandakúlur (báðar tegundir) niður og bætið þeim ásamt Rice Krispies í pottinn og blandið vel.

Setjið blönduna í formið og þjappið og jafnið vel, geymið í frysti á meðan þið bræðið súkkulaðið.

Bræðið dökka dropa í einni skál og hvíta í annarri, smyrjið fyrst dökka súkkulaðinu jafnt yfir döðlublönduna og skvettið síðan því hvíta óreglulega yfir allt saman og setjið í frysti aftur í um 20 mínútur.

Takið síðan út, lyftið blöndunni upp úr forminu á bökunarpappírnum og skerið niður í munnstóra bita.

Geymið í kæli eða frysti þar til bitanna skal njóta.

Innihaldsefni

Allt sem þú þarft fyrir þessa uppskrift

220 g smjör

450 g saxaðar döðlur

120 g púðursykur

120 g Pandakúlur með saltkaramellubragði

120 g Pandakúlur með jarðarberjabragði

100 g Kellogg‘s Rice Krispies

300 g Síríus suðusúkkulaðidropar

80 g Síríus hvítir súkkulaðidropar