Pralín Karamellubúðingur

Pralín Karamellubúðingur

Uppskrift fyrir fjóra 

Uppskrift

Leiðbeiningar

Fylgdu skrefunum og þá gengur allt eins og í sögu

Skerið karamellusúkkulaðið í bita og setjið í pott ásamt mjólkinni.

Bræðið súkkulaðið við vægan hita þar til allt hefur blandast vel saman.

Takið pottinn af hellunni, látið standa í 10-15 mínútur og hellið síðan í skál.

Þeytið rjómann og blandið varlega saman við súkkulaðiblönduna.

Stífþeytið egg jahvíturnar og blandið þeim varlega saman við súkkulaðirjómann.

Setjið búðinginn í skál og látið í kæli í að minnsta kosti klukkustund. Stráið karamellukurli yfir allt áður en hann er borinn fram.

Innihaldsefni

Allt sem þú þarft fyrir þessa uppskrift

250 g Síríus Pralín með karamellufyllingu
500 ml rjómi
2 eggjahvítur
2 msk mjólk
150 g Nóa Síríus karamellukurl