Rjómasúkkulaðimús

Rjómasúkkulaðiunnendur takið eftir! Hér kemur ein sú einfaldasta og ljúffengasta uppskrift af súkkulaðimús þó víða væri leitað!
Uppskrift
Leiðbeiningar
Súkkulaðimús
Saxið súkkulaðið niður.
Hitið 250 ml af rjómanum að suðu og hellið yfir súkkulaðið ásamt saltinu.
Pískið saman þar til allt súkkulaðið er bráðið.
Bætið þá restinni af rjómanum sem ekki var hitaður saman við í mjórri bunu og hrærið vel saman ásamt vanilludropunum.
Þegar búið er að píska blönduna vel saman má setja lok á skálina og kæla blönduna í að minnsta kosti 4 klukkustundir eða yfir nótt.
Hellið þá kældri blöndunni í hrærivélarskálina og þeytið þar til áferðin minnir á léttþeyttan rjóma.
Skiptið niður í skálar/glös og skreytið.
Toppur/skreyting
Sprautið þeyttum rjóma yfir hverja súkkulaðimús.
Saxið suðusúkkulaðið niður og skreytið með því ásamt hindberjum.
Innihaldsefni
Súkkulaðimús
300 g Síríus rjómasúkkulaði
500 ml rjómi
¼ tsk. salt
1 tsk. vanilludropar
Toppur/skreyting
250 ml þeyttur rjómi
50 g Síríus suðusúkkulaði með karamellu og sjávarsalti
Hindber