Sælgætisskál með piparmynturjóma og heitri súkkulaðisósu

Sælgætisskál

Uppskrift

Leiðbeiningar

Fylgdu skrefunum og þá gengur allt eins og í sögu

Setjið Nóa Kropp í botninn á skál og myljið marengsbotn yfir það.

Þeytið rjóma og bætið piparmyntu Pralín varlega saman við með sleif.

Setjið rjómann yfir Nóa Kroppið og síðan jarðarber yfir allt.

Setjið piparmyntu Pralín, rjóma og síróp saman í pott og hitið við vægan hita. Berið fram með sælgætisskálinni.

Innihaldsefni

Allt sem þú þarft fyrir þessa uppskrift

Marengsbotn

1 marengsbotn
150 g Nóa Kropp
250 ml rjómi
50 g Síríus Pralín með piparmyntu, saxað
250 g jarðarber, skorin í fernt

 

Piparmyntusúkkulaðisósa
150 g Síríus Pralín með pippfyllingu
2 dl rjómi
2 msk síróp