Trítlanammi Rocky Road
Uppskrift
Leiðbeiningar
Fylgdu skrefunum og þá gengur allt eins og í sögu
Bræðið súkkulaði yfir vatnsbaði og kælið svolítið.
Setjið saxaða poppsmelli, hlauptrítla og perluhnappa í pappírsklædd bökunarform.
Hellið súkkulaðinu yfir og setjið inn í kæli þar til súkkulaðið er orðið stíft.
Skerið í litla bita og berið fram.
Í nammiblönduna getur líka verið gott að hafa Nóa Kropp, Perluhnappa, Lakkríshnappa eða einfaldlega uppáhalds Nóa sælgætið.
Innihaldsefni
Allt sem þú þarft fyrir þessa uppskrift
200 g Síríus suðusúkkulaði
200 g Síríus rjómasúkkulaði
100 g Nóa súkkulaði poppsmellur
150 g Nóa trítlar
100 g Nóa perluhnappar