Eitt sett ískaka

K8A1986 Iskaka Med Lakkris

Uppskrift

Leiðbeiningar

Fylgdu skrefunum og þá gengur allt eins og í sögu

BOTN

Setjið bökunarpappír í botninn og inn á hliðarnar á um 22 cm smelluformi (gott að klippa renning af bökunarpappír og líma innan á hliðina).

Setjið kexið í blandara þar til sandáferð hefur myndast og hellið í skál.

Blandið bræddu smjörinu saman við og setjið í botninn á forminu, þjappið létt niður og aðeins upp á hliðarnar.

Kælið á meðan þið útbúið ísinn.

ÍS MEÐ LAKKRÍS

Þeytið eggjarauður og púðursykur þar til létt og ljóst og bætið vanillusykri saman við í lokin.

Vefjið þeyttum rjóma saman við með sleikju og bætið lakkrískurli saman við.

Að lokum má stífþeyta eggjahvíturnar og vefja þeim varlega saman við ísblönduna.

Hellið í kökuformið, plastið og frystið í að minnsta kosti 4 klukkustundir.

Berið fram með heitri lakkríssósu og berjum.

LAKKRÍSSÓSA OG SKREYTING

Bræðið Eitt sett töggur og rjóma saman í potti þar til slétt lakkríssósa hefur myndast og leyfið hitanum að rjúka úr.

Skreytið með berjum og bera fram með lakkríssósunni.

Innihaldsefni

Allt sem þú þarft fyrir þessa uppskrift

BOTN

16 stk. Oreo kexkökur

60 g brætt smjör

 

ÍS MEÐ LAKKRÍS

5 egg (aðskilin)

100 g púðursykur

2 tsk. vanillusykur

420 ml þeyttur rjómi

150 g Síríus Eitt sett lakkrískurl

 

LAKKRÍSSÓSA OG SKREYTING

1 poki (150 g) Eitt Sett töggur

5 msk. rjómi

Jarðarber

Rifsber

Blæjuber

Síríus Eitt sett lakkrískurl