Ísterta
Uppskrift
Leiðbeiningar
BRÚNKUBOTN
Kveikið á ofninum og stillið á 175°C, undir- og yfirhita.
Bræðið smjör og súkkulaði varlega saman í potti. Bætið sykrinum út í.
Þeytið eggin þar til þau verða létt og ljós.
Hellið súkkulaðiblöndunni varlega saman við eggin og hrærið rólega á meðan.
Blandið saman hveiti, kakói, lyftidufti og salti, hrærið saman við súkkulaðiblönduna.
Smyrjið 22 cm smelluform (gott að setja smjörpappír í hliðar formsins líka)
og hellið deiginu í formið. Bakið í 20-25 mín. Leyfið kökunni að kólna alveg að stofuhita.
ÍS
Þeytið rjómann vel.
Þeytið eggjarauðurnar og púðursykurinn mjög vel saman í annarri skál þar til blandan myndar borða.
Blandið rjómanum varlega saman við eggjablönduna með sleikju.
Bætið lakkrískurlinu út í ísblönduna og blandið saman með sleikju.
Hellið deiginu yfir brúnkubotninn, hyljið með plastfilmu og geymið í frysti í a.m.k. 12 klst.
Skreytið með jarðarberjum og fersku rósmarín
Innihaldsefni
BRÚNKUBOTN
100 g smjör
150 g Síríus suðusúkkulaði
150 g sykur
2 egg
30 g hveiti
20 g Síríus kakóduft
½ tsk. lyftiduft
¼ tsk. salt
ÍS
500 ml rjómi
6 eggjarauður
170 g púðursykur
300 g Nóa Eitt Sett lakkrískurl
SKRAUT
Jarðarber
Ferskt rósmarín