Karamelluísterta með salthnetumarengsbotni
Uppskrift
Leiðbeiningar
Marengsbotn
Þeytið eggjahvíturnar þar til þær eru orðnar stífar, setjið sykurinn smátt og smátt saman við og þeytið í um 5-10 mínútur eða þar til marengsinn er orðinn þéttur og glansandi.
Blandið salthnetunum varlega saman við með sleif.
Setjið deigið í form klætt með smjörpappír og bakið í 130°C heitum ofni í um eina klukkustund.
Krem
Þeytið egg jarauður og sykur vel saman eða þar til létt og ljóst.
Saxið rjómasúkkulaðið og blandið saman við. Þeytið að lokum rjómann og bætið varlega saman við með sleif.
Setjið kremið yfir botninn og frystið í að minnsta kosti 4 klukkustundir. Takið kökuna úr frysti 15 mínútum áður en hún er borin fram og skreytið með söxuðu Síríus rjómasúkkulaði með karamellu og sjávarsalti.
Innihaldsefni
Marengsbotn
3 eggjahvítur
2 dl sykur
50 g salthnetur, saxaðar
Karamellukrem
3 eggjarauður
1 dl sykur
200 g Síríus rjómasúkkulaði með karamellu og sjávarsalti
4 dl þeyttur rjómi
Skraut
100 g Síríus rjómasúkkulaði með karamellu og sjávarsalti