Perluhnappa ísterta

Linda Ben X Noi Sirius Agust 2024 2 2 683X1024

Frábær ísterta sem gleður alla fjölskylduna! Fljótlegur eftirréttur sem auðvelt er að töfra fram.

Uppskrift

Leiðbeiningar

Fylgdu skrefunum og þá gengur allt eins og í sögu

Setjið smelluhringform án botnsins á kökudisk, athugið hvort diskurinn komist ekki örugglega fyrir í frystinum.

 

Brjótið marengsbotninn niður og setjið á kökudiskinn með smelluformshringnum.

 

Setjið helminginn af vanilluísinum (sem þarf að vera svolítið mjúkur) ofan á marengsinn og pressið hann niður. Raðið helmingnum af perluhnappa súkkulaðinu ofan í ísinn ásamt helmingnum af karamellukurlinu og helmingnum af súkkulaðiperlunum. Setjið það sem eftir er af ísnum ofan á og toppið með því sem eftir er af karamellukurlinu

 

Smellið öllu í frysti þar til ísinn hefur náð að harðna aftur.

 

Takið úr frysti og fjarlægið smelluformshringinn, þeytið rjóma og setjið ofan á ístertuna. Skreytið með því sem eftir er af perluhnöppunum og súkkulaðiperlunum.

Innihaldsefni

Allt sem þú þarft fyrir þessa uppskrift

Tilbúinn marengsbotn

1 líter vanillu rjómaís

125 g Síríus perlu hnappar 

150 g Síríus súkkulaðiperlur

75 g Síríus karamellukurl

250 ml rjómi