Pippsúkkulaðiís
fyrir 8-10
Uppskrift
Leiðbeiningar
Fylgdu skrefunum og þá gengur allt eins og í sögu
Þeytið rjómann.
Þeytið eggjarauðurnar og púðursykurinn mjög vel saman í annarri skál þar til létt, ljóst og blandan myndar borða ef þeytarinn er tekinn upp og deigið lekur aftur
í skálina.
Blandið rjómanum varlega saman við eggjarauðublönduna með sleikju.
Skerið pralín súkkulaðið niður og blandið því saman við.
Hellið ísnum í form, lokið því t.d. með plastfilmu og frystið yfir nótt (eða lengur).
Innihaldsefni
Allt sem þú þarft fyrir þessa uppskrift
500 ml rjómi
6 eggjarauður
170 g púðursykur
200 g Síríus pralín súkkulaði með pippfyllingu