Smash ísterta
Uppskrift
Leiðbeiningar
Fylgdu skrefunum og þá gengur allt eins og í sögu
Setjið smelluhringform án botnsins á kökudisk, athugið hvort diskurinn komist ekki örugglega fyrir í frystinum.
Brjótið marengsbotninn niður og setjið á kökudiskinn með smelluformshringnum.
Setjið vanilluuísinn (sem þarf að vera svolítið mjúkur) ofan á marengsinn og pressið hann niður. Raðið Smash súkkulaðinu ofan í ísinn þannig að mjói endinn snúi niður í ísinn. Smellið öllu í frysti þar til ísinn hefur náð að harðna aftur.
Takið úr frysti og fjarlægið smelluformshringinn, þeytið rjóma og setjið ofan á ístertuna. Skreytið með meira Smash súkkulaði og berjum.
Innihaldsefni
Allt sem þú þarft fyrir þessa uppskrift
Tilbúinn marengsbotn
1 líter vanillu rjómaís
200 g (2 pokar) Smash súkkulaði
250 ml rjómi
Ber sem þér finnst falleg og góð (t.d. jarðaber, hindber, rifsber, bláber eða brómber)