Afmæliskaka
Uppskrift
Leiðbeiningar
Hitið ofninn í 170°C , setjið bökunarpappír í botninn á fjórum 15 cm smelluformum og spreyið vel með matarolíuspreyi.
Setjið þurrefnin í hrærivélarskálina og blandið létt saman.
Pískið eggin í stóra skál og bætið AB mjólk, matarolíu og vanilludropum saman við pískið vel.
Að lokum má píska heita vatnið saman við vökvann og hella honum yfir þurrefnin og hræra á meðan á lægstu stillingu.
Skafið niður hliðarnar á skálinni og blandið vel, athugið að deigið er þunnt.
Skiptið jafnt niður í bökunarformin og bakið í um 30 mínútur eða þar til prjónn kemur út með smá kökumylsnu á endanum, ekki blautu deigi.
Kælið botnana og skerið ofan af þeim áður en þið setjið kökuna saman.
SÚKKULAÐIKREM
Þeytið saman smjör, rjómaost og kakó þar til létt, skafið niður hliðarnar.
Bætið flórsykri og rjóma saman við til skiptis, þeytið og skafið niður á milli.
Að lokum fara vanilludropar saman við og þeytið áfram þar til létt en þétt súkkulaðikrem hefur myndast.
SAMSETNING OG SKREYTING
Setjið um 1 cm þykkt lag af súkkulaðikremi á milli botna og hjúpið síðan alla kökuna með þunnu lagi að kremi, setjið í kæli í um 15 mínútur.
Setjið þá annað lag af kremi á kökuna, um ½ cm þykkt á alla kökuna að utan og sléttið úr eins og unnt er með kökuspaða.
Setjið súkkulaðiperlurnar í skál, fyllið lófann af perlum og dragið aðeins upp hliðina á kökunni frá botni og aðeins upp á hana, allan hringinn (sjá video).
Kælið nú aftur kökuna í um 30 mínútur og útbúið síðan súkkulaðihjúpinn.
Saxið suðusúkkulaðið smátt og hitið rjómann að suðu, hellið honum yfir saxað súkkulaðið og pískið saman þar til slétt súkkulaðibráð hefur myndast.
Takið kökuna úr kæli og hellið súkkulaðibráð á toppinn og ýtið aðeins fram af með kökuspaða allan hringinn (líka hægt að setja í flösku/túpu ef þið viljið stýra „drippinu“ betur).
Kælið að nýju í um 30 mínútur og skreytið síðan toppinn.
Setjið restina af súkkulaðikreminu í sprautupoka með stórum stjörnustút (t.d Wilton 1M eða 2D), sprautið litla toppa allan hringinn og setjið súkkulaðiperlur ofan á.
Stingið síðan kertum í kökuna miðja og geymið í kæli fram að notkun.
Innihaldsefni
SÚKKULAÐIBOTNAR
250 g hveiti
350 g sykur
80 g Síríus kakó
2 tsk. matarsódi
1 tsk. salt
4 egg
250 ml AB mjólk
150 ml ljós matarolía
2 tsk. vanilludropar
250 ml heitt vatn
SÚKKULAÐIKREM
300 g smjör við stofuhita
150 g rjómaostur við stofuhita
60 g Síríus kakó
900 g flórsykur
80 ml rjómi
2 tsk. vanilludropar
SAMSETNING OG SKREYTING
4 x súkkulaðibotnar (sjá uppskrift að ofan)
Súkkulaðikrem (sjá uppskrift að ofan)
300 g Síríus perlur
100 g Síríus suðusúkkulaði
60 ml rjómi
Afmæliskerti að eigin vali