Berja súkkulaðitart
Uppskrift
Leiðbeiningar
Fylgdu skrefunum og þá gengur allt eins og í sögu
Myljið kremkex í mjöl og setjið í skál, bætið kakói í skálina, bræðið smjörið og blandið öllu saman.
Smyrjið 22 cm smelluform og setjið á kökudisk. Pressið blönndunni í botninn og aðeins upp á kanta smelluformsins.
Hitið rjóma í potti, nánast að suðu, slökkvið undir pottinum.
Brjótið súkkulaðið ofan í pottinn og hrærið þar til allt hefur bráðnað.
Hellið súkkulaðibráðinni ofan í formið og setjið inn í ísskáp í u.þ.b. 1-2 klst eða þar til súkkulaðið hefur stirðnað í gegn.
Skreytið með berjum.
Innihaldsefni
Allt sem þú þarft fyrir þessa uppskrift
300 g kremkex
120 g smjör
1/2 dl sælkerabaksturs kakóduft
300 g Síríus Barón 56% súkkulaði
200 g rjómi
Ber, til dæmis jarðaber, brómber, bláber og kirsuber í bland eða þau ber sem þér þykir best