Besta brownie kakan

Linda Ben X Noi Sirius Mars 2023 8 683X1024

Uppskrift

Leiðbeiningar

Fylgdu skrefunum og þá gengur allt eins og í sögu

Kveikið á ofninum og stillið á 175°C, undir og yfir hita 

Setjið smjör og sykur í pott, hitið rólega svo að smjörið bráðni. 

Haldið áfram að hita blönduna og leyfið henni að malla varlega í nokkrar mínútur eða þar til sykurkonrin eru aðeins farin að minnka og blandan orðin meira sírópskennd. Takið af hitanum og leyfið blöndunni að kólna svolítið. 

Setjið hveiti og kakó saman í skál.

Hellið smjör og sykurblöndunni í skál, setjið suðusúkkulaðið ofan í skálina og hrærið þar til súkkulaðið hefur bráðnað saman við 

Bætið eggjunum út í blönduna og hrærið

Bætið hveiti og kakó út í og hrærið. Skerið Barón súkkulaðið í bita og blandið saman við deigið.

Setjið smjörpappír í 25x25 cm stórt form og hellið deiginu í formið. Bakið í uþb 30 mín eða þar til stökk himna hefur myndast yfir kökunni og endarnir eru alveg bakaðir í gegn. 

Leyfið kökunni að kóna fullkomlega áður en hún er skorin

Innihaldsefni

Allt sem þú þarft fyrir þessa uppskrift

180 g smjör

300 g sykur

200 g suðusúkkulaði

150 g hveiti

40 g kakó

4 egg

150 g Barón súkkulaði