Blaut bollakaka í örbylgjuofni

Blaut Sukkuladikaka I Bolla 18 683X1024
Bökunartími
1 mín
Undirbúningstími

Uppskrift dugar í eina Nóa Síríus könnu

Uppskrift

Leiðbeiningar

Fylgdu skrefunum og þá gengur allt eins og í sögu

Setjið hveiti, sykur, kakóduft, lyftiduft og salt saman í bollann og blandið saman með gaffli.

Bætið þá bræddu smjöri, mjólk, eggi og vanilludropum saman við og pískið vel saman.

Saxið suðusúkkulaði með karamellukurli og sjávarsalti gróft og setjið efst á deigið og hellið einni matskeið af vatni yfir toppinn.

Setjið í örbylgjuofn á hæstu stillingu í 50-60 sekúndur.

Leyfið að kólna í nokkrar mínútur og njótið, gott er að bera kökuna fram með ís eða rjóma.

Innihaldsefni

Allt sem þú þarft fyrir þessa uppskrift

15 g hveiti

20 g sykur

1 msk. Síríus kakóduft

½ tsk. lyftiduft

¼ tsk. salt

20 g brætt smjör

20 ml nýmjólk

1 lítið egg

½ tsk vanilludropar

15 g Síríus suðusúkkulaði með karamellukurli og sjávarsalti

1 msk. vatn