Brownies með þrenns konar súkkulaði
Uppskrift
Leiðbeiningar
Fylgdu skrefunum og þá gengur allt eins og í sögu
Bræðið suðusúkkulaði og rjómasúkkulaði með smjörinu í vatnsbaði.
Hrærið egg, sykur og vanilludropa vel saman.
Sigtið hveitið út í ásamt salti og hrærið vel.
Hellið súkkulaðiblöndunni út í og hrærið vel.
Bætið hvítu súkkulaðidropunum saman við.
Þekið skúffukökuform með bökunarpappír og hellið deiginu í.
Bakið í 30 mínútur í 175°C heitum ofni.
Innihaldsefni
Allt sem þú þarft fyrir þessa uppskrift
200 g Síríus suðusúkkulaði
50 g Síríus rjómasúkkulaði
115 g smjör
3–4 egg
250 g (hrá)sykur
3 tsk vanilludropar
150 g Síríus hvítir súkkulaðidropar
150 g hveiti
1⁄23 tsk salt