Eitt Sett brownies

Brownie Med Lakkris 15 1024X683

Uppskrift

Leiðbeiningar

Fylgdu skrefunum og þá gengur allt eins og í sögu

Hitið ofninn í 160°C og klæðið ferkantað kökuform að innan með bökunarpappír (c.a 25×25 cm) og spreyið með matarolíuspreyi að innan.

Bræðið smjör og báðar tegundir af súkkulaðidropum saman í potti við miðlungs háan hita þar til bráðið, geymið á meðan annað er undirbúið.

Setjið púðursykur og vanilludropa í skál og hellið súkkulaðiblöndunni saman við.

Bætið næst eggjunum saman við, einu í einu og loks hveitinu.

Saxað Eitt sett súkkulaði fer saman við í lokin og blandið saman með sleikju.

Hellið í kökuformið og bakið í um 35 mínútur.

 

Bræðið saman Eitt sett töggur og 50 ml af rjóma þar til slétt lakkríssósa hefur myndast.

Toppið síðan brownie bita með þeyttum rjóma, ferskum jarðarberjum og lakkríssósu.

Innihaldsefni

Allt sem þú þarft fyrir þessa uppskrift

BROWNIES

130 g smjör

150 g Síríus suðusúkkulaðidropar

150 g Síríus Doré karamelludropar

180 g púðursykur

2 tsk. vanilludropar

3 egg

140 g hveiti

100 g saxað Síríus Eitt sett súkkulaðistykki

LAKKRÍSSÓSA OG TOPPUR

100 g Síríus Eitt sett töggur

50 ml rjómi

Þeyttur rjómi eftir smekk

Jarðarber eftir smekk