Guðdómleg frönsk súkkulaðikaka

Linda Ben X Nói Síríus Júlí 2022 5 Scaled

Uppskrift

Leiðbeiningar

Fylgdu skrefunum og þá gengur allt eins og í sögu

Kveikið á ofninum og stillið á 180°C, undir og yfir hita.

Þeytið egg og sykur þar til blandan verður létt og ljós.

Bræðið smjör í potti á vægum hita, slökkvið undir og setjið súkkulaðið út í, hrærið þar til bráðnað og samlagað. Bætið síðan súkkulaðibráðinni út í eggjablönduna varlega í mjórri bunu á meðan verið er að hræra rólega.

Bætið hveitinu út í og hrærið varlega.

Smyrjið 23 cm form og hellið deiginu í formið, bakið í u.þ.b. 30-40 mín eða þar til endarnir eru orðnir stífir en miðjan ennþá svolítið mjúk.

Útbúið kremið með því að setja smjör og síróp í pott og bræða á vægum hita. Slökkvið undir og setjið svo súkkulaðið út í, hrærið þar til bráðnað.

Hellið kreminu yfir kökuna, skerið jarðaberin niður í 4 hluta og setjið yfir kökuna.

Innihaldsefni

Allt sem þú þarft fyrir þessa uppskrift

KREM

200 g sykur

4 egg

200 g suðusúkkulaði með karamellu og salti

200 g smjör

100 g hveiti

KAKA

200 g suðusúkkulaði með karamellu og salti

70 g smjör

70 g síróp

SKRAUT

250 g jarðaber