Kroppurinn

Kroppurinn

Uppskrift

Leiðbeiningar

Fylgdu skrefunum og þá gengur allt eins og í sögu

BOTN
Hitið ofninn í 150°C.

Þeytið eggjahvíturnar og bætið sykrinum saman við í nokkrum skömmtum.

Stífþeytið þar til blandan hreyfist ekki til í skálinni sé henni hvolft.

Setjið bökunarpappír á ofnplötu eða bökunarpappír í botninn á tveimur 22 cm lausbotna formum og smyrjið þá hliðarnar með smjöri.

Skiptið marengsblöndunni á bökunarpappírinn eða í formin og bakið í 50–60 mínútur við 150°C.

Kælið botnana mjög vel áður en þið setjið sælgætisrjóma á milli.

 

SÆLGÆTISRJÓMI Á MILLI
Þeytið rjóma og bætið flórsykri og vanillu saman við.

Þrýstið á kókosbollurnar og skerið þær í litla bita, blandið þeim varlega saman við rjómann ásamt karamellukurli, Nóa Kroppi og ávöxtum.

Smyrjið rjómanum á milli botnanna.

 

OFAN Á
Þeytið rjóma og setjið yfir marengskökuna.

Skerið jarðarber og bláber smátt og dreifið yfir.

Hellið karamellusósunni yfir í lokin og berið strax fram.

 

KARAMELLUSÓSA
Bræðið rjómakúlurnar í rjómanum við vægan hita, hrærið vel í og kælið áður en þið hellið yfir marengskökuna.

Það er mjög mikilvægt annars gæti marengsinn og rjóminn bráðnað.

Skreytið kökuna með ferskum jarðarberjum og karamellukurli.

Innihaldsefni

Allt sem þú þarft fyrir þessa uppskrift

MARENGSBOTN
5 eggjahvítur
1 dl sykur
3 1⁄2 dl púðursykur

 

SÆLGÆTISRJÓMI

Á MILLI
500 ml rjómi
2 tsk flórsykur
1 tsk vanillusykur
2 kókosbollur
100 g Síríus karamellukurl
150 g Nóa Kropp
3 dl smátt skorin jarðarber

 

OFAN Á
250 ml rjómi
2 dl smátt skorin jarðarber
1 dl bláber
1– 2 dl karamellusósa, sjá uppskrift fyrir neðan

 

KARAMELLUSÓSA
1 poki Nóa rjómakúlur
1 dl rjómi