Ljúffeng súkkulaðiskúffukaka

Linda Ben X Noi Sirius 2024 1 4 683X1024

Uppskrift

Leiðbeiningar

Fylgdu skrefunum og þá gengur allt eins og í sögu

SÚKKULAÐI SKÚFFUKAKA

Kveikið á ofninum og stillið á 180°C, undir og yfir hita.

Setjið þurrefnablönduna, egg, brætt smjör/olíu og vatn í skál. Hrærið rólega saman í 3-4 mínútur eða þar til deigið hefur samlagast og orðið glansandi.

Smyrjið 20×30 cm form og hellið deiginu í formið. Bakið í u.þ.b. 25 mín eða þar til kakan er bökuð í gegn.

Kælið að stofuhita og útbúið kremið á meðan. Uppskriftin er hér fyrir neðan.

Smyrjið kreminu á kökuna og skreytið með páskaeggjum nr 1 og súkkilaðiperlum

KREM

Hrærið smjörið þar til það er létt og ljóst.

Bætið rjómaostinum saman við og því næst flórsykrinum, kakóinu, hrærið þar til létt og loftmikið.

Bætið vanilludropunum og kaffinu út í, hrærið þar til silkimjúkt.

Innihaldsefni

Allt sem þú þarft fyrir þessa uppskrift

KAKAN

500 g Linda Ben Ljúffeng súkkulaðikaka þurrefnablanda

3 egg

150 g brætt smjör/150 ml bragðlítil olía

1 dl vatn

4 stk páskaegg nr 1 frá Nóa Síríus

Súkkulaðiperlur frá Nóa Síríus

LJÚFFENGA SÚKKULAÐIKREMIÐ

300 g smjör

150 g rjómaostur

500 g flórsykur

50 g Síríus kakóduft

2 tsk vanilludropar

1/2 dl sterkt kaffi (má skipta út fyrir 1/2 dl rjóma)