Marengstertukrans með smá Nóa kroppi

Linda Ben X Nói Síríus Nóvember 2024 2 2

Uppskrift

Leiðbeiningar

Fylgdu skrefunum og þá gengur allt eins og í sögu

Kveikið á ofninum og stillið á 140°C og undir+yfir hita.

Setjið eggjahvítur í tandurhreina skál ásamt cream of tartar og salti, þeytið þar til byrjar að freyða.

Bætið þá púðursykrinum og sykrinum saman við rólega og þeytið þar til eggjahvíturnar ná alveg stífum toppum.

Teiknið 30 cm hringi á smjörpappír og snúið við smjörpappírnum svo pennastrikið snúi niður.

Setjið marengsdeigið í sprautupoka með stórum opnum stjörnustút.

Sprautið nokkra hingi á pennastrikið svo myndist krans.

Bakið í 50 mín og slökkvið þá á ofninum en ekki taka botnana úr ofninum fyrr en þeir eru orðinir alveg kaldir.

 Hægt er að gera botninn með allt að viku fyrirvara.

Setjið myntusúkkulaðið í pott og bræðið með 1 dl rjóma, leyfið blöndunni að kólna.

Þeytið rjómann, setjið 1 msk af rjóma á kökudiskinn undir marengsinn svo að hann haldist betur á sínum stað á diskinum.

Bætið smá Nóa Kroppinu út í og blandið saman með sleikju.

Setjið rjómann ofan á marengsinn, dreifið kældri súkkulaðisósunni yfir rjómann.

Skreytið með granateplakjörnum og rósmarín.

Innihaldsefni

Allt sem þú þarft fyrir þessa uppskrift

4 eggjahvítur

¼ tsk cream of tartar

¼ tsk salt

60 g púðursykur

200 g sykur

500 ml rjómi – notað á tveimur stöðum í uppskriftinni, skipt í 400 ml og 100 ml

150 g smá Nóa Kropp

200 g Síríus suðusúkkulaði með myntubragði

Skraut: Granateplakjarnar og ferskt rósmarín