Nóa kropp skyrkaka með hvítu súkkulaði og ferskum jarðarberjum

Noa Kropp Skyrkaka

Uppskrift

Leiðbeiningar

Fylgdu skrefunum og þá gengur allt eins og í sögu

Myljið Nóa Kroppið gróflega og setjið í form.

Þeytið rjómann.

Hrærið vanilluskyr og brædda, hvíta súkkulaðidropa varlega saman við með sleif.

Hellið blöndunni yfir Nóa Kroppið. Skreytið með berjum og Nóa Kroppi.

Geymið í kæli þar til kakan er borin fram

Innihaldsefni

Allt sem þú þarft fyrir þessa uppskrift

200 g Nóa Kropp
500 ml rjómi
700 g vanilluskyr
300 g Síríus hvítir dropar, bræddir

 

Skraut
250 g jarðarber, fersk
100 g Nóa Kropp