Örkin hans Nóa

Noi Bokunarbaeklingur 2020 11154 Copy

Uppskrift

Leiðbeiningar

Fylgdu skrefunum og þá gengur allt eins og í sögu

Setjið smjörlíki, egg, möndlur, sykur og döðlur í pott og hitið við vægan hita í 5 mínútur.

Kælið.

Hrærið Rice Krispies og Nóa Kroppi saman við, mótið í rúllu og kælið.

Bræðið súkkulaði í vatnsbaði og hellið yfir rúlluna.

Skreytið hana með Nóa Kroppi og Síríus karamellukurli

Frystið í 1-2 klukkustundir.

Berið fram með þeyttum rjóma eða ís.

Innihaldsefni

Allt sem þú þarft fyrir þessa uppskrift

BOTN
3 bollar Kellogg ́s Rice Krispies
2 msk. smjörlíki 
2 egg 
1⁄2 bolli möndlur, smátt saxaðar 
1⁄2 bolli sykur 1⁄2 bolli döðlur, smátt saxaðar 
200 g Síríus suðusúkkulaði 
1 bolli Nóa Kropp

SKRAUT
Nóa Kropp 
Síríus karamellukurl