Rice Krispies kaka með banana og karamellusósu

Rice Krispies Kaka Með Banana Og Karamellusósu

Uppskrift

Leiðbeiningar

Fylgdu skrefunum og þá gengur allt eins og í sögu

Bræðið smjör og súkkulaði saman við vægan hita í potti, hrærið sírópi saman við og blandið svo Rice Krispies saman við að lokum.

Setjið blönduna í hringlaga form og kælið í að minnsta kosti 20-30 mínútur.

 

Rjómakrem
Þeytið rjómann og skerið bananana í bita.

Einnig er hægt að stappa bananana. Blandið saman og setjið á kökuna.

 

Karamellusósa
Bræðið rjómakúlur í rjómanum við vægan hita, hrærið vel.

Kælið sósuna í smá tíma og setjið svo ofan á kökuna.

Innihaldsefni

Allt sem þú þarft fyrir þessa uppskrift

Botn
100 g smjör
100 g Síríus 56% súkkulaði
100 g Síríus Pralín með karamellufyllingu
4 msk síróp
5 bollar Kellogg's Rice Krispies

 

Rjómakrem
250 ml rjómi
2 bananar (þroskaðir)

 

Karamellusósa
150 g Nóa rjómakúlur
1⁄2 dl rjómi