Rice Krispies kaka með Nóa Smá Kroppi og rjóma

Hrískaka Með Rjóma (11)

 

 

Uppskrift

Leiðbeiningar

Fylgdu skrefunum og þá gengur allt eins og í sögu

Botn 

Bræðið saman suðusúkkulaði, smjör og sýróp, leyfið að sjóða saman örskamma stund og slökkvið þá á hellunni.

Bætið Rice Krispies og smákroppi saman við og blandið vel.

Klæðið botninn á um 20 cm smelluformi með bökunarpappír og hellið blöndunni í formið, sléttið úr eins og unnt er og kælið áður en þið setjið toppinn á.

Toppur

Skerið bananann í bita og blandið saman við rjómann, smyrjið yfir hrískropps botninn.

Toppið með niðurskornum jarðarberjum, smákoppi og karamellusósu.

 

Innihaldsefni

Allt sem þú þarft fyrir þessa uppskrift
  • 150 g Síríus suðusúkkulaði
  • 40 g smjör
  • 4 msk. sýróp
  • 100 g Rice Krispies
  • 150 g Nóa Smákropp
  • 300 ml þeyttur rjómi
  • 1 banani
  • ½ poki af Nóa Smákroppi
  • Nokkur jarðarber
  • Karamellusósa