Súkkulaðipæ með karamellukúlum

Súkkulaðipæ

Uppskrift

Leiðbeiningar

Fylgdu skrefunum og þá gengur allt eins og í sögu

Stráið hveiti á borð og fletjið smjördeig þunnt út, leggið yfir eldfast mót og þrýstið snyrtilega að börmunum.

Pikkið í með gaffli og bakið í 200°C heitum ofni í 10 mínútur, eða þar til deigið tekur góðan lit.

Bræðið rjómakúlur með smjöri í potti og hellið yfir deigið.

Ristið hneturnar á þurri pönnu og dreifið yfir karamelluna.

Bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði.

Skiljið að eggjarauður og hvítur og þeytið rauðurnar og hrærið saman við súkkulaðið.

Stífþeytið hvítur og blandið saman við með sleif.

Hellið kreminu yfir kökuna og kælið.

Skreytið með jarðarberjum, karamellukurli og hnetum, áður en pæið er borið er fram.

Innihaldsefni

Allt sem þú þarft fyrir þessa uppskrift

3 plötur smjördeig úr pakka
20 stk Nóa rjómakúlur
50 g smjör
1⁄2 dl rjómi
1 bolli hnetur
100 g Síríus suðusúkkulaði
3 egg
Jarðarber
Nóa karamellukurl