Súkkulaði ostakaka sem þarf ekki að baka
Bökunartími
Undirbúningstími
Uppskrift
Leiðbeiningar
Myljið kexið í matvinnsluvél eða blandara þangað til það er orðið að fínu mjöli.
Bræðið smjörið og blandið því saman við kex mjölið.
Takið stórt smelluform, 24 cm í þvermál, setjið smjörpappír í botninn og lokið forminu. Gott er að klippa renning af smjörpappír, jafn stóran og hliðar formsins, og leggja upp að hliðunum líka.
Þrístið kexblöndunni í botninn á forminu og setjið í frysti.
Setjið 1 dl rjóma og 200 g suðusúkkulaði í pott, bræðið varlega og kælið svo blönduna að stofuhita.
Rjómaostur er hrærður og blandið súkkulaðibráðinni saman við.
Þeytið rjómann og blandið honum svo varlega saman við rjómaostablönduna með sleikju.
Hellið deiginu í formið, sléttið toppinn á kökunni og setjið í frystinn í 3-4 klst eða yfir nótt (má líka vera lengur í fyrsti ef þið viljið gera kökuna með lengri fyrirvara)
Takið kökuna úr fyrstinum 3-4 tímum áður en hún er borin fram.
Bræðið varlega saman súkkulaði og rjómann, hrærið vel saman þangað til súkkulaðisósa hefur myndast. Leyfið súkkulaðisósunni að kólna og hellið svo yfir kalda kökuna.
Fjarlægið smelluforms hringinn og smjörpappírinn og berið fram kökuna.
Innihaldsefni
250 g Oreo kexkökur
100 g smjör
400 g rjómaostur
200 g Síríus suðusúkkulaði
6 dl rjómi, skipt í 5 dl þeyttur og 1 dl til að blanda í súkkulaði
200 g suðusúkkulaði
1 dl rjómi