Corn flakes Smákökur
Uppskrift
Leiðbeiningar
Fylgdu skrefunum og þá gengur allt eins og í sögu
Þeytið eggjahvítur og púðursykur vel saman.
Blandið Kellogg's Corn flakes og kókosmjöli varlega saman við með sleif ásamt suðusúkkulaði og vanilludropum.
Setjið síðan með teskeið á plötu með bökunarpappír, í smá toppa.
Bakið í 150°C heitum ofni í um 15 mínútur.
Innihaldsefni
Allt sem þú þarft fyrir þessa uppskrift
4 eggjahvítur
200 g púðursykur
160 g Kellogg's Corn flakes
120 g kókosmjöl
100 g Síríus suðusúkkulaði
1 tsk vanilludropar