Dökkar lakkrís súkkulaðibitakökur með hvítu súkkulaði

Kökur Lind Nóv 23

Uppskrift

Leiðbeiningar

Fylgdu skrefunum og þá gengur allt eins og í sögu

Þeytið saman smjör, púðursykur og sykur þar til blandan er orðin létt og ljós.

Bætið egginu út í og þeytið áfram.

Blandið saman hveiti, matarsóda og kakó, bætið út í deigið.

Bætið mjólk út í deigið ásamt hvítum súkkulaðidropum og lakkrískurli, blandið saman.

Kveikið á ofninum og stillið á 175°C, undir og yfir hita.

Mótið kúlur með matskeið úr deiginu, raðið á ofnplötu klædda bökunarpappír með góðu millibili og bakið í u.þ.b. 8-10 mín eða þar til kantarnir eru bakaðir en kökurnar ennþá frekar blautar inní.

Hvíta súkkulaðið passar svakalega vel með lakkrísnum og dökku kökunum.

Þær eru stökkar að utan, mjúkar og seigar að innan.

Það mikilvægasta af öllu er að baka þær ekki of lengi heldur taka þær út þegar kanturinn á kökunum lítur út fyrir að vera bakaður en þær eru ennþá vel blautar inní miðju.

Innihaldsefni

Allt sem þú þarft fyrir þessa uppskrift

110 g smjör við stofuhita

85 g púðursykur

85 g sykur

1 egg

150 g hveiti

1 tsk matarsódi

½ tsk salt

20 g sælkerabaksturs kakóduft frá Nóa Síríus

1 msk mjólk

150 g Hvítir súkkulaðidropar frá Nóa Síríus

150 g lakkrískurl frá Nóa Síríus