Dökkar súkkulaðibitakökur með hvítu súkkulaði
Uppskrift
Leiðbeiningar
Fylgdu skrefunum og þá gengur allt eins og í sögu
Þeytið saman smjör, púðursykur og sykur þar til blandan er orðin létt og ljós.
Bætið egginu út í og þeytið áfram.
Blandið saman hveiti, matarsóda og kakó, bætið út í deigið.
Bætið mjólk út í deigið ásamt hvítum súkkulaðidropum og blandið saman.
Kveikið á ofninum og stillið á 175°C, undir og yfir hita.
Mótið kúlur með matskeið úr deiginu, raðið á ofnplötu klædda bökunarpappír með góðu millibili og bakið í u.þ.b. 8-10 mín
Innihaldsefni
Allt sem þú þarft fyrir þessa uppskrift
110 g smjör við stofuhita
85 g púðursykur
85 g sykur
1 egg
150 g hveiti
1 tsk matarsódi
½ tsk salt
20 g sælkerabaksturs kakóduft frá Nóa Síríus
1 msk mjólk
150 g sælkerabaksturs hvítir súkkulaðidropar frá Nóa Síríus