Kararmellu pralín sörur

Linda Ben X Nói Síríus Nóvember 2024 1 1

Uppskrift

Leiðbeiningar

Fylgdu skrefunum og þá gengur allt eins og í sögu

Byrjið á því að útbúa kremið.

Þeytið eggjarauður í hrærivél þar til blandan er orðin létt og ljós.

Hitið vatn og sykur í potti í um 3 mínútur eða þar til sykurinn hefur náð að leysast upp í vatninu.

Hellið sykurvatninu saman við eggjarauðurnar í mjórri bunu og hrærið rólega á meðan.

Þeytið þar til blandan er loftmikil og nánast hvít að lit.

Bræðið Síríus pralín súkkulaðið.

Hellið því næst súkkulaðibráðinni saman við eggjablönduna í mjórri bunu og hrærið rólega á meðan.

Stoppið reglulega og skafið hliðar skálarinnar með sleikju svo allt blandist vel saman.

Skerið mjúka smjörið í litla bita og þeytið það saman við.

Geymið kremið inni í ísskáp í um klukkutíma eða á meðan verið er að útbúa botnana.

Kveikið á ofninum og stillið á 175°C með yfir- og undirhita.

Setjið eggjahvítur í skál ásamt salti og cream of tartar, þeytið þar til blandan freyðir og bætið þá sykrinum út í.

Þeytið þar til stífir toppar myndast.

Blandið saman flórsykri og möndlumjöli.

Bætið út í eggjahvítublönduna og veltið varlega saman við með sleikju þar til samlagað.

Hellið deiginu ofan í sprautupoka með hringlaga stút.

Sprautið á smjörpappírsklæddar ofnplötur þannig að hver kaka sé u.þ.b. 4 cm í þvermál, passið að hafa u.þ.b. 2-3 cm bil á milli þeirra svo að þær klessist ekki saman í ofninum.

Bakið í u.þ.b. 12 mín. Leyfið kökunum að kólna.

Smyrjið kremi á hverja köku svo það sé kúpt í miðjunni en þynnist út að köntunum.

Kælið kökurnar í stutta stund.

Bræðið loks súkkulaði yfir vatnsbaði og hjúpið hverja köku með því að dýfa kreminu ofan í súkkulaðið.

Leggið kökurnar á grind á meðan súkkulaðið storknar.

Innihaldsefni

Allt sem þú þarft fyrir þessa uppskrift

Botn

3 eggjahvítur

1/3 tsk. salt

1/3 tsk. cream of tartar

50 g sykur

200 g flórsykur

200 g möndlumjöl

 

Krem 

3 eggjarauður

100 g vatn

100 g sykur

300 g Síríus pralín súkkulaði með saltkaramellufyllingu

100 g mjúkt smjör

 

Hjúpur

400g Síríus suðusúkkulaði