Lakkrístoppar

Noi Sælkerabakstur Toppar Eittsett Poki
Bökunartími
20 mín
Undirbúningstími
5 mín

Lakkrístopparnir eru einstakir og hjá mörgum ómissandi í undirbúningi jólanna. 

Uppskrift

Leiðbeiningar

Fylgdu skrefunum og þá gengur allt eins og í sögu

Stífþeytið eggjahvítur og púðursykur. Saxið súkkulaðið smátt. Bætið lakkrískurli og súkkulaði varlega saman við stífþeyttu eggjahvíturnar. Látið á plötu með teskeið. Bakið í miðjum ofni við 150°C í 15-20 mín. Ath! Hiti og tími getur verið breytilegur eftir ofnum. 

Innihaldsefni

Allt sem þú þarft fyrir þessa uppskrift

3 eggjahvítur
200g púðursykur
150g Síríus rjómasúkkulaði
150g Síríus sælkerabakstur Eitt Sett lakkrískurl